Gleðilega páska.
Ég vil góðfúslega benda á lista Óla Rúnars, gítarhetju, á blogginu víðfræga
www.bagdad.blogdrive.comyfir bestu rokkplötur allra tíma. Stórskemmtilegur listi hjá honum.
Mig langar ofboðslega að gera svona lista, en myndi eflaust kúka á mig, hef ekki hlustað nóg á sumar hljómsveitir, eða plötur þeirra.
Afsakið. Hinsvegar gaman að gera topp 10 uppáhaldsplöturnar sínar. Mana aðra Mirlinga til að gera það einnig. Hérna er minn listi(eins og hann er í dag) :
Radiohead - OK Computer:
Náttúrulega tímamótaverk, þessi diskur og var millistigið á milli The Bends (sem ég er ekkert allt of skotinn í, þrátt fyrir að vera mjög góð) og Kid A (sem ég verð bara alltaf skotnari og skotnari í). Það er ekki veikan blett að finna á plötunni en að mínu mati eru topparnir
Let Down, Paranoid Android, No Surprises...svona mætti lengi halda áfram.
Modest Mouse - Good news for people who love bad news:
Set þennan disk bara sem fulltrúa Modest Mouse (dásamleg hljómsveit). Ég og Ívar vorum einmitt um daginn að tala um það hversu undarlegt og undursamlegt það er að finna disk sem maður getur ennþá hlustað á ári eftir að hann kom út og fengið þetta þvílíka kitl í magann. Frábær lög sem saman mynda sterka heild.
Sigur Rós - Ágætis byrjun:
Ég sé að þessi listi verður með mjög hefðbundnu móti, hehe.
Ég var mjög lengi að melta þessa plötu. Setti hana í. Tók hana úr. Nokkrir mánuðir liðu. Setti hana í. Hafði hana dálítinn tíma. Tók út. Var pínu áttavilltur. Enda unglingur. Nokkrar vikur liðu. Setti hana í. Tók hana alls ekkert úr.
Ég held það verði bara að játast að allt það sem gagnrýnendur og annað fólk hefur sagt um þessa plötu er alveg hárrétt. Þetta er tímamótaverk í íslenskri tónlistarsögu og lífi mínu.
Red Hot Chili Peppers - Blood Sugar Sex Magik:
Eins og margir vita er ég ógeðfelldur Chili Peppers aðdáandi og þessi plata er svo yndisleg. Ég verð að eilífu þakklátur fyrir það að Micheal Balzary skuli hafa fæðst (Flea).
Sem og John Frusciante.
Mest allan tímann úber töff en inn á milli viðkvæm og falleg. Er erfitt að velja milli BSSM, Californication og By the way en ég vel þessa. Í dag.
The Flaming Lips - The Soft Bulletin:
Man þegar ég hlustaði fyrst á þetta hugsaði ég með mér ,,hmm".
Ég hélt áfram að gera það dálítinn tíma en hætti aldrei að hlusta. Þessi diskur er svo undarlegur en samt frábærlega auðveldur í hlustun. Klassísk lög á borð við Waitin' for superman, What is the light og Suddenly everything has changed.
Alltaf gaman að hlusta á þennan.
Air - Moon safari :
Diskurinn sem mætti sem heljarstökk í framtíðina. Undursamleg tónlist frá þessum franska dúett. Vann sig ennþá meira inn eftir að ég horfði á frábært myndband á L.ung.A sem Garðar Bachman stóð að meðal annara þar sem lagið you make it easy var notað. Diskur sem er margt af mörgu.
Broken Social Scene - You forgot it in people:
Alveg frábær diskur. Blanda saman allskyns stefnum og gera snilldarstöff. Tók tíma að melta hana algjörlega en þegar ég var búinn að því var ég einn sáttur apaköttur.
Drop that phone, park that car, sleep on the floor, dream about me. Good times.
Metallica - Master of Puppets:
Maður var nú einn sá snargeðveikasti MetallicA aðdáandi á sínum tíma þannig að ég held að það hljóti að vera bannað að hafa þennan ekki með. Frábær 8 lög með þessum snillingum. Allaveganna fyrrum snillingum. R.I.P. Cliff Burton, snargeðveikur bassaleikara sem verður alltaf í miklu uppáhaldi.
Mogwai - Happy Songs for Happy People:
Varð að hafa einhvern fulltrúa fyrir Mogwai. Annað er eflaust ólöglegt. Var að hugsa um að setja Young Team, sérstaklega í tengslum þá við L.ung.A 2003 og þegar Miri var að byrja en síðan setti ég á lög af þessari og fékk hroll. Frábær plata. Mæli með því að hlusta á hana meðan maður ber út. Á þessari taka Mogwai dálitlum breytingum, enn heilsteyptari lög og ekki jafn fyrirséð sveiflukennd í gangi eins og var.
Wishbone Ash - Pilgrimage:
Til heiðurs föður mínum og áhrifum hans á mig og mína tónlist. Frábær diskur með frábærri hljómsveit. Eitt af uppáhaldslögunum mínum Valediction er á þessum disk en það lag mótaði mig heilmikið.
extra "diskur" :
Jesus Christ Superstar:
Einstaklega viðeigandi hehe og satt um leið. Elska þetta verk og ég get ábyrgst það að ég mun alltaf hlusta á þetta einstaka tónlistarverk. Snilld. Snilld. Snilld.
A room of trust, a room of fears
A room of laughter with a few sweet tears.
There we lay that sunny dawn
Calm, but helpless as it lingers on.
(úr Valediction)
gleðilega páska - Hj.